Wednesday, October 23, 2002

Var að klára verkefni í Markaðsfræði um samstefnulíkan en það gengur út á að staðsetja fyrirtæki á markaði. Við tókum Taco Bell eftir að hafa skoðað taco conseptið þá gæti ég alveg séð að því yrði tekið vel hér á landi.

Monday, September 30, 2002

Ég hef tekið þá ákvörðun að byrja að blogga. Það virðast allir vera farnir að blogga í dag svo það telst því ekki mjög frumlegt en engu að síður hef ég ákveðið að skella mér í þetta.
Það er búið að vera nóg að gera í skólanum og vikurnar fljúga áfram, er núna í markaðsfræðiverkefni en þar á ég að gera VALS módel en þetta módel er mikið notað í Bandaríkjunum til að mæla neytendahegðun. En þetta módel eins og önnur verður að taka með ákveðnum fyrirvara.